Alþjóðlegi votlendisdagurinn

Jan 18, 2022

Alþjóðlegi votlendisdagurinn er 2. febrúar 

 

Alþjóðlegi votlendisdagurinn er 2. febrúar á hvert en dagurinn markar þau tímamót að þann dag árið 1971 var Ramsarsamningur, samningur um votlendi, undirritaður en hann er alþjóðlegur samningur sem dregur nafn sitt af borginni Ramsar í Íran þar sem undirritunin fór fram.

 

Í dag eru um 170 ríki aðilar að samningnum þ.a.m. Ísland og tæplega 2.300 svæði vernduð af honum en samtals er flatarmálið er rúmlega stærð Mexíkó. Á Íslandi eru Ramsarsvæði sex talsins. Þau eru Grunnafjörður, Andakíl, Mývatn-Laxá, Guðlaugstungur, Þjórsárver og Snæfell-Eyjabakka svæðið. 

 

Framræsing votlendis

Á síðustu öld jókst landbúnaðarframleiðsla mikið og til þess að halda í við aukninguna var hafið átak í að framræsa votlendi til þess að auka akuryrkju. Talið er að framræst hafi verið um 4.200 km2 lands en aðeins 15% af því er notað til landbúnaðarframleiðslu. Því eru næg verkefni við að endurheimta það votlendi sem ekki er notað í landbúnað.

 

Áhrif framræsingar

Binding kolefna (C) í jarðvegi og vötnum gerist með ljóstillífun þegar plöntur vinna Koldíoxíð úr súrefni og losa út súrefnið í andrúmsloftið sem er okkur svo mikilvægt. Plönturnar nýta kolefnið og geyma það. Annað birtingarform á kolefni í jarðvegi er olía og mór.

 

Vatn kemur í veg fyrir að jarðvegur rotni og þess vegna er jarðvegur í votlendi afar mikilvægur þar sem hann bindur mjög stóran hluta af kolefnisforða jarðar. Þegar votlendi er ræst fram kemst súrefni að lífræna jarðveginum sem fer að rotna sem leiðir til þess að gróðurhúsalofttegundir (GHL) losna.

 

Með tímanum sígur framræstur jarðvegur og má t.d. sjá þess merki við sökkla húsa í Norðurmýri í Reykjavík. Þar hefur jarðvegur sigið um 50-60 cm en þau hús eru byggð um miðbik síðustu aldar. Erlendis t.d. í Englandi eru dæmi um sig á jarðvegi sem nemur 3-4 metrum á svæðum sem framræst voru fyrir 2-300 árum síðan.

 

Helstu gróðurhúsalofttegundirnar sem um ræðir eru koltvísýringur (CO2), metangas (CH4) og hláturgas (N2O) stundum kallað glaðgas. Þess utan eru aðrar tegundir af GHL en í töluvert minna mæli.

 

Við framræsingu þá minnkar einnig fjölbreytileiki náttúrunnar. Yfir 90% fugla byggja afkomu sína að einhverju leiti á votlendi. Framræsing hefur því alvarleg áhrif. Því er mikilvægt að vinna að endurheimtun votlendis.

 

Loftlagsmálin og skuldbinding Íslands

Með loftlagssamningi Sameinuðu þjóðanna sem samþykktur var árið 2015 undirgekkst Ísland þær skyldur að minnka losun GHL um 40% fram til ársins 2030. Markmiðið er að halda hlýnun loftlags innan við 2°C en helst að hún verði ekki meiri en 1,5°C með því að draga úr losun eða binda gróðurhúsaloft.

 

Loftlagsbókhaldið og markmiðin

Til þess að ná markmiðunum þarf að hraða orkuskiptum í samgöngum, minnka losun á GHL frá landbúnaði, iðnaði og meðhöndlun úrgangs og er sú losun sem þarf að vinna á um 4.7 milljónir tonna af COígíldum á ári. Þetta er sú losun sem fellur undir loftlagsbókhald Íslands og er stefnt að 40% samdrætti.

 

Hugtakið - CO2 ígildi / koltvísýringsígildi - er samheiti fyrir gróðurhúsalofttegundirnar s.s. CO2, metan og hláturgas en þau eru missterk og losun þeirra er misjöfn.

 

Losun gróðurhúsalofttegunda úr framræstu votlendi

Þessu til viðbótar losar framræst votlendi um tvöfalt meira af GHL en greinarnar innan loftlagsbókhaldsins eða um 10 milljónir tonna af CO2 ígildum árlega. Samtals er því losun Íslands tæplega 15 m. tonna á ári. Það er því verk að vinna.

 

Þó svo að losun vegna framræsts lands teljist ekki í loftlagsbókhaldi Íslands nema að hluta kemur það okkur öllum til góða að minnka losun. Árið 2011 fengu íslensk stjórnvöld því framgengt á alþjóðavettvangi að niðurstöður slíkra aðgerða væri hægt að skrá. Það er jákvætt því áhrifin eru þau sömu - að minnka losun GHL og áhrif þeirra á loftslagið.

 

Votlendi og vísindin

Vísindamenn á Íslandi sem stundað hafa mælingar á framræstu votlendi hérlendis staðfesta að ekkert sem komið hefur fram í þeirra mælingum gefi til kynna annað en að hægt sé að miða við alþjóðlegt meðaltal losunar.  Það meðaltal sem IPCC hefur gefið út er 19.5 tonn á hvern hektara á hverju ári. 

 

Þannig má ljóst vera að það er verulegur ávinningur falin í endurheimtinni.

 

Samkvæmt upplýsingum sem unnið er eftir hér á landi er talið að um 4.600 hektara séu framræstir og af þeim eru 3.600 ha ekki notaðir til landnytja. Af nógu er því að taka. Endurheimt votlendis fer þannig fram að skurðir eru stíflaðir eða fyllt í þá til þess að hækka vatnsstöðu landssvæðisins. Það gerist tiltölulega hratt og þegar vatnsstaða nær áætlaðri stöðu stöðvast losun en yfirleitt tekur það nokkrar vikur eða mesta lagi nokkra mánuði til að ná ætluðum árangri.

 

Lausnirnar

Lausnir sem hafa það sameiginlegt að minnka GHL í andrúmsloftinu eru nokkrar s.s. skógrækt, landbætur, landgræðsla og endurheimt votlendis. Saman mynda þessar lausnir von til að ná settum markmiðum. Það er mikilvægt að halda lausnunum á lofti svo fyrirtæki, sveitarfélög sem og einstaklingar hafi val.

 

Votlendissjóðurinn

Votlendissjóðurinn hefur það markmið að leitast við að færa land í átt til fyrra horfs og skapa lífsskilyrði fyrir gróður og dýralíf sem áður ríkti. Hlutverk sjóðsins er að leiða saman landeigendur, fyrirtæki, félagasamtök, einstaklinga og sveitarfélög sem vilja leggja þessum markmiðum lið og minnka losun GHL með því að endurheimta framræst votlendi.

 

Landeigendur eru fjölmennastir meðal bænda og eru því í lykilstöðu. Með því að vinna með Votlendissjóðnum er hægt að minnka verulega losun GHL. Mikilvægt er að vekja athygli á því að ekki er ætlunin að vinna á ræktuðu landi sem bændur nota heldur þeim hluta sem er ónotaður.

 

Samfélagsleg ábyrgð okkar

Til þess að ná markmiðum Íslands í loftlagsmálum eru margar leiðir færar. Við þurfum öll að leggja lóð okkar á vogarskálarnar með því m.a. að taka þátt í orkuskiptum í samgöngum og nota almenningssamgöngur. Við getum endurskoðað innkaupavenjur, minnkað sóun matvæla, aukið endurvinnslu sorps, kolefnisjafnað ferðalög eða dregið úr þeim svo eitthvað sé nefnt.

 

Aðalatriðið er þó að hafa skýran fókus á markmiðinu – að draga úr hlýnun loftlags með öllum tiltækum ráðum fyrir árið 2030. Það er samfélagslegt verkefni okkar að stuðla að því. Ekki bara fyrir okkur sjálf heldur einnig fyrir börn okkar og barnabörn.

 

By Einar Þór Bárðarson 31 Jan, 2023
Votlendissjóður stöðvar sölu kolefniseininga  þar til vottun er í höfn
By Einar Þór Bárðarson 25 Oct, 2022
Ein af aðalforsendunum í þessu ferli er að fá meðaltalslosun hektara á Íslandi staðfesta og verkefni Eflu þessa daganna er að taka saman öll rannsóknargögn Landgræðslunnar og Landbúnaðarháskólans og setja saman í greinar sem fengju ritrýnda meðferð í viðurkenndum vísindaritum.
By Einar Þór Bárðarson 01 Sep, 2022
Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs eru veitt starfsemi eða einstaklingi á Norðurlöndum sem sett hefur fordæmi með því að samþætta virðingu fyrir umhverfinu í starfi sínu, eða með því að sýna frumkvæði á annan hátt að sértækum aðgerðum umhverfinu til góða
By Einar Þór Bárðarson 29 Jun, 2022
Landgræðslustjóri gerir alvarlegar athugasemdir við rannsókn á losun ræktarlands sem birt var á dögunum. Í grein sem hann birtir í Bændablaðinu segir hann "Úttektar- aðilar eru fljótir að sjá í gegnum óvönduð vinnubrögð." Greinina má lesa í heild sinni hér að neðan.
By Einar Þór Bárðarson 22 Apr, 2022
Í dag föstudaginn, 22 apríl afhend forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, „Vonina“, þakklætis-viðurkenningu Votlendissjóðs .
By Einar Þór Bárðarson 06 Apr, 2022
Ný stjórn Votlendissjóðs  kom saman á sínum fyrsta stjórnarfundi síðasta mánudag.
By Einar Þór Bárðarson 24 Mar, 2022
Síðustu daga hafa verið afgreidd tvö framkvæmdaleyfi fyrir framkvæmdir á vegum Votlendissjóðs 
By Einar Þór Bárðarson 24 Mar, 2022
Votlendi njóta sérstakrar verndar sa mkvæmt náttúruverndarlögum
By Einar Þór Bárðarson 24 Mar, 2022
Rýnihópur vélaverktaka með reynslu a f endurheimt votlendis kom að gerð námskeiðsins og sammældist um að námskeiðið væri afar gagnlegt .
By Einar Þór Bárðarson 17 Mar, 2022
Árskýrsla Votlendissjóðs aðgengileg
More Posts
Share by: