Ársfundur Votlendissjóðs 2020
June 2, 2020
Ársfundur Votlendissjóðs 2020 verður haldinn fimmtudaginn 11. júní kl. 17:00 á veitingastaðnum Sjálandi, Ránargrund 4, 210 Garðabæ.
Dagskrá ársfundar, samkvæmt skipulagsskrá Votendissjóðs er sem hér segir:
1. Kjör fundarstjóra og annarra embættismanna fundarins.
2. Skýrsla stjórnar og umræður þar um.
3. Endurskoðaðir reikningar síðastliðins árs lagðir fram.
4. Endurnýjun einstakra stjórnarmanna skv. tillögu stjórnar.
5. Viðurkenningar afhentar.
6. Önnur mál.
Skilgreint hlutverk sjóðsins er að vinna að því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda með endurheimt votlendis í samstarfi við landeigendur, ríki, sveitarfélög, félagasamtök og einstaklinga.
“Endurheimtum mýri, sköpum ævintýri”