Stöðvuðum útblástur 720 fólksbíla á árinu 2019

Feb 16, 2020
Votlendissjóður endurheimti votlendi á fjórum jörðum árið 2019. Allar fóru jarðirnar í gegnum úttekt hjá Landgræðslunni en eftir hana hófumst við handa. Fyrst riðu á vaðið landeigendur á Hofi í Norðfirði og endurheimtu á sinni jörð, þá koma Garðlist verktakar og framkvæmdu endurheimt á Bessastöðum en svo var það ÍSTAK sem lagði okkur til atfylgi í Bleiks- og Krísuvíkurmýri sem samtals voru 53 hektarar en í það heila endurheimtum við votlendi á 72 hekturum sem er stöðvun útblásturs sem nemur 1.440 tonnum á þessu ári og margfaldað í 8 ár sem dæmi eru það 11.520 tonn af CO2 ígildum sem hætta að fara út í andrúmsloftið. Það er sambærilegt því að við myndum taka 720 bíla úr umferð í ár. Það magn á ári samsvarar svo 5760 fólksbílum í 8 ár. Það munar sannarlega um það. Framundan eru mjög spennandi tímar hjá Votlendissjóð.
By Einar Þór Bárðarson 31 Jan, 2023
Votlendissjóður stöðvar sölu kolefniseininga  þar til vottun er í höfn
By Einar Þór Bárðarson 25 Oct, 2022
Ein af aðalforsendunum í þessu ferli er að fá meðaltalslosun hektara á Íslandi staðfesta og verkefni Eflu þessa daganna er að taka saman öll rannsóknargögn Landgræðslunnar og Landbúnaðarháskólans og setja saman í greinar sem fengju ritrýnda meðferð í viðurkenndum vísindaritum.
By Einar Þór Bárðarson 01 Sep, 2022
Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs eru veitt starfsemi eða einstaklingi á Norðurlöndum sem sett hefur fordæmi með því að samþætta virðingu fyrir umhverfinu í starfi sínu, eða með því að sýna frumkvæði á annan hátt að sértækum aðgerðum umhverfinu til góða
By Einar Þór Bárðarson 29 Jun, 2022
Landgræðslustjóri gerir alvarlegar athugasemdir við rannsókn á losun ræktarlands sem birt var á dögunum. Í grein sem hann birtir í Bændablaðinu segir hann "Úttektar- aðilar eru fljótir að sjá í gegnum óvönduð vinnubrögð." Greinina má lesa í heild sinni hér að neðan.
By Einar Þór Bárðarson 22 Apr, 2022
Í dag föstudaginn, 22 apríl afhend forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, „Vonina“, þakklætis-viðurkenningu Votlendissjóðs .
By Einar Þór Bárðarson 06 Apr, 2022
Ný stjórn Votlendissjóðs  kom saman á sínum fyrsta stjórnarfundi síðasta mánudag.
By Einar Þór Bárðarson 24 Mar, 2022
Síðustu daga hafa verið afgreidd tvö framkvæmdaleyfi fyrir framkvæmdir á vegum Votlendissjóðs 
By Einar Þór Bárðarson 24 Mar, 2022
Votlendi njóta sérstakrar verndar sa mkvæmt náttúruverndarlögum
By Einar Þór Bárðarson 24 Mar, 2022
Rýnihópur vélaverktaka með reynslu a f endurheimt votlendis kom að gerð námskeiðsins og sammældist um að námskeiðið væri afar gagnlegt .
By Einar Þór Bárðarson 17 Mar, 2022
Árskýrsla Votlendissjóðs aðgengileg
More Posts
Share by: